Galatians 1

1Páll postuli _ ekki sendur af mönnum né að tilhlutun manns, heldur að tilhlutun Jesú Krists og Guðs föður, sem uppvakti hann frá dauðum _ 2og allir bræðurnir, sem með mér eru, heilsa söfnuðunum í Galatalandi. 3Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni vorum Jesú Kristi, 4sem gaf sjálfan sig fyrir syndir vorar, til þess að frelsa oss frá hinni yfirstandandi vondu öld, samkvæmt vilja Guðs vors og föður. 5Honum sé dýrð um aldir alda, amen. 6Mig furðar, að þér svo fljótt látið snúast frá honum, sem kallaði yður í náð Krists, til annars konar fagnaðarerindis, 7sem þó er ekki til; heldur eru einhverjir að trufla yður og vilja umhverfa fagnaðarerindinu um Krist. 8En þótt jafnvel vér eða engill frá himni færi að boða yður annað fagnaðarerindi en það, sem vér höfum boðað yður, þá sé hann bölvaður. 9Eins og vér höfum áður sagt, eins segi ég nú aftur: Ef nokkur boðar yður annað fagnaðarerindi en það, sem þér hafið veitt viðtöku, þá sé hann bölvaður. 10Er ég nú að reyna að sannfæra menn eða Guð? Er ég að leitast við að þóknast mönnum? Ef ég væri enn að þóknast mönnum, þá væri ég ekki þjónn Krists. 11Það læt ég yður vita, bræður, að fagnaðarerindið, sem ég hef boðað, er ekki mannaverk. 12Ekki hef ég tekið við því af manni né látið kenna mér það, heldur fengið það fyrir opinberun Jesú Krists. 13Þér hafið heyrt um háttsemi mína áður fyrri í Gyðingdóminum, hversu ákaflega ég ofsótti söfnuð Guðs og vildi eyða honum. 14Ég fór lengra í Gyðingdóminum en margir jafnaldrar mínir meðal þjóðar minnar og var miklu vandlætingasamari um erfikenningu forfeðra minna. 15En þegar Guði, sem hafði útvalið mig frá móðurlífi og af náð sinni kallað, 16þóknaðist að opinbera mér son sinn, til þess að ég boðaði fagnaðarerindið um hann meðal heiðingjanna, þá ráðgaðist ég eigi við neinn mann, 17ekki fór ég heldur upp til Jerúsalem til þeirra, sem voru postular á undan mér, heldur fór ég jafnskjótt til Arabíu og sneri svo aftur til Damaskus. 18Síðan fór ég eftir þrjú ár upp til Jerúsalem til að kynnast Kefasi og dvaldist hjá honum hálfan mánuð. 19Engan af hinum postulunum sá ég, heldur aðeins Jakob, bróður Drottins. 20Guð veit, að ég lýg því ekki, sem ég skrifa yður. 21Síðan kom ég í héruð Sýrlands og Kilikíu. 22Ég var persónulega ókunnur kristnu söfnuðunum í Júdeu. 23Þeir höfðu einungis heyrt sagt: ,,Sá sem áður ofsótti oss, boðar nú trúna, sem hann áður vildi eyða.`` 24Og þeir vegsömuðu Guð vegna mín.
Copyright information for Icelandic